Aðalfundur Kvenna í sjávarútvegi (KIS) var haldinn á dögunum þar sem ný stjórn var kjörin. Á fundinum var einnig samþykkt að færa starfsemi Konur í eldi, sem hefur verið sérstök deild innan KIS, inn í almennt starf félagsins. Með því verður vettvangur KIS enn breiðari og nær til kvenna þvert á sjávarútveg, fiskeldi og tengdar greinar.
Erla Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri hjá IcelandPet, var kjörin formaður Kvenna í sjávarútvegi og fjórar nýjar konur tóku sæti í stjórn félagsins. „Við viljum að konur í bláa hagkerfinu vaxi og nái árangri saman. Það er mikil þekking og reynsla til staðar og við höfum tækifæri til þess að læra hver af annarri. Með því að sameina krafta okkar getum við styrkt tengslanetið og haft áhrif á spennandi framtíð í íslenskum sjávarútvegi,” segir Erla Tryggvadóttir, nýkjörinn formaður Kvenna í sjávarútvegi.
Í KIS eru nú um 260 félagskonur og hefur félagið vaxið jafnt og þétt á undanförnum árum. Markmið KIS er að efla tengslanet kvenna, miðla fróðleik sem nýtist í starfi og auka sýnileika og áhrif kvenna innan greinarinnar. Um leið vill félagið búa til vettvang þar sem ólík þekking, reynsla og sjónarmið mætast.
Nýjar í stjórn, kjörnar til tveggja ára, eru Anna Björk Theodórsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Oceans of Data, Guðbjörg Oddný Jónasdóttir, samskiptastjóri Benchmark Genetics, Hera Katrín Aradóttir, sérfræðingur hjá Fiskistofu, og Ólöf Helga Jónsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs og stoðsviða Kaldvíkur. Áfram sitja þær Anna Soffía Víkingsdóttir, gæðastjóri hjá Haustaki, Linda Ósk Kjartansdóttir, fjármálastjóri hjá Ganta, Mariam Laperashvili, markaðsstjóri hjá Wisefish, og Guðríður Svana Bjarnadóttir, verkefnastjóri fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka. Erla tekur við formennsku af Tinnu Gilbertsdóttur, sem hefur leitt félagið síðastliðin þrjú ár. Úr stjórn ganga einnig Fanney Björk Friðriksdóttir hjá Brimi, Ingveldur Ásta Björnsdóttir stjórnarkona hjá Odda á Patreksfirði, Sandra Antonsdóttir hjá Einhamar Seafood og Silja Baldvinsdóttir hjá Arnarlaxi. KIS þakkar þeim öllum kærlega fyrir frábært samstarf og mikilvægt framlag til félagsins.
Konur í sjávarútvegi eru hvattar til þess að taka þátt og skrá sig í félagið því fram undan er viðburðaríkt starfsár hjá félaginu svo sem rannsókn á stöðu kvenna í sjávarútvegi og fjölbreyttar heimsóknir í fyrirtæki í sjávarútvegi víða um land. Nánari upplýsingar og skráning má finna á www.kis.is.

